Í dag um fimmleitið, lést Sigrún Bjarnadóttir. Ég vill nota tækifærið og senda mínar dýfstu samúðaróskir til Vals og barnana þeirra,barnabarna og barnabarnabarns. Kveðja Hrefna
Ég, Hrefna fékk þá hugmynd að hérna myndi fólk setja inn í gestabókina batnaðar og stuðningskveðjur til Sigrúnar Bjarnadóttur, fyrrum handmenntakennara í Grunnskólanum á Hellu. Sigrún hefur undan farin ár þurfta standa af sér mikil veikindi í kjölfar meðferðar á krabbameini. Nú síðast þurfti hún síðan að fara í uppskurð á höfði vegna blæðingar sem þar kom. Sigrún liggur nú á spítala og tel ég að henni þætti vænt um að vita að krakkarnir sem voru hjá henni í kennslu væru að hugsa til hennar þó langt sé liðið frá grunnskólanum.